Gramur og gamall
Tveir strákar standa úti við kastalann og raula gamla nóa byrjunnarlínurnar aftur og aftur þeir eru ofsóttir af hugsuninni að þeir hafi drepið hana . Hvurslags ódæðismenn voru þeir í raun og veru þeir höfðu nappað epli í garðinum hjá litla veðmangaranum og það var fluga á eplinu. Þeir drápu hana hún er dáin þeir labba út að sjó og einn þeirra skellur í hafið sekkur niður á ískaldann botninn og deyr hægt og rólega en hinn fær sér gulrót og sest niður og fer að horfa á Power Rangers hann sofnar við hvininn í vindinum en hann er vakinn af manni flugunnar sem er brjálaður og ætlar að berja hann. Hann hleypur niður stigann og flugan er búinn að myrða mömmu hanns og hundinn hanns hann rennur í stiganum og flugan nær honum og lemur hann þangaðtil að það svíður undan . Það er byrjað að blæða hann grípur til örþrifaráða og stingur fluguna með tannstöngli og hún deyr. Hvað er hann orðinn. Tvöfaldur morðingi allslaus og hræddur hann klárar að horfa á credidsið á Power Rangers myndini og fer að sofa hann vaknaði ekki aftur því hann hafði óverdósað á flóaðri mjólk. Hann er núna dáinn með svarta samvisku á bakviðsig og enginn veit hvað um vídeóspóluna hanns varð.