Langar að segja ykkur frá creepy hlut sem gerðist á Kóparokki.

Var nýbúinn að spila seinasta lagið með hljómsveitinni minni og var að ganga frá og sko nokkrir vinir mínir voru fremst og ég fór fremst á sviðið til að tala við þá og beygði mig niður og þá skyndilega kom hellingur af höndum =P Bæði vinir mínir í djóki og svo eitthvað fólk sem ég þekkti ekkert sem greip um mig og byrjaði að reyna að rífa mig til sín =P

Og sko þegar ég leit upp þá sá ég bara: Skært ljós vegna ljóskastara, heyrði helling af öskrum, sá óskýr andlit og hellingur af höndum var að rífa í mig.

Það var creepy =P En ég slapp og missti aðeins einn fingur og hálft auga =)