Mwuhahahaha, mér var gefið blað og mér var gefinn penni, núna sit ég hér og svitinn lekur af mínu enni!
Ég sest niður og ég hugsa, miða pennann og ég skrifa, ég skrifa niður leiðbeiningar um hvernig á að lifa!
Maður tekur smá af gleði og blandar við hið besta flippkast, hleypur síðan á hundrað niður Laugarveginn að stripast!
Maður reynir að eyða öllu sem grátur kallast gæti, reynir frekar að dansa um allt og sýna af sér ú-ú kæti!
Maður vingast alla við af ættum miklum sem og litlum, fer með þeim heim hvors annars til og þar við ú-ú kitlum!
Jebb, þannig er de la það.
Þaaaaannig …. Hvenær eruð þið í sem bestu skapi, brosandi og sælutilfinningin líður í gegnum ykkur? Og er það einhver sem lætur ykkur fá slíkt, sem getur látið þig brosa einfaldlega með því að vera til?
De la svarið fólk!