Í nótt dreymdi mig draum. Skrítinn draum.
Ég var eitthvað að gera þegar allt í einu að ég finn fyrir þónokkrum sársauka í vinstri hendi. Ég lít á hana og sé að ég hafði þegar ég var að rétta höndina út um glugga á bíl rétt áður, rekið mig í lausa grein.
Hún stakkst inn í mig.
Fór inn um þumalputtann og út hinum megin, aftur inn í löngutöng og síðan út hinum megin, Alveg í gegnum þessa tvo putta.
Ég reyni að tosa þetta út og það tekst að lokum. Síðan lít ég og sé að það vantar beinið sem á að vera þarna, það hefur smassast í burt þegar greinin kom þangað inn.
Ég dríf mig á næstu heilsugæslustöð en áður en ég kemst þangað dettur langatöng af mér.
Ég vaknaði.
Þetta var ógeðslegt.