Ég hefði skýrt korkinn endur en ég vil ekki endur taka mig.. Ahh.. Endur taka mig.. HJÁLP!

Ég er búin að sannfæra stelpuna sem situr oftast við hliðina á mér í skólanumað endur séu að reyna að ná heimsyfirráðum..

Endurnar eru komnar inná huga.. hvað sem þið gerið EKKI ÝTA Á ENDURSKOÐA TAKKANN. Það er það sem þær vilja.

Ég var í badmington um daginn og þurfti að endurtaka uppgjöf. Nú vilja þær líka taka uppgjafirnar. Ef þið skoðið þetta betur

Endur taka uppgjöf.

Ég er bara orðin Andfúl..

Hefur einhverntíman heyrt þetta;
“Viltu ekki endurskoða ákvörðun þína?”

Nei, ég vil ekki að endur skoði ákvörðun mína.

Ef maður skoðar samhengin þá er þetta orðið nokkuð alvarlegt.

HerraFullkominn hvar er andspyrnan? Ég er oft að heyra e-ð um Pentagon í útvarpinu (2-3 sinnum…)

Tjörnin í rvk. er andsetin!