Það var handboltaæfing í dag og ég, Supermann, sigurjondadi, nonnos og fleiri mættu.
Nánast áður en æfingin byrjaði þá fór sigurjondadi upp á svið fyrir aftan körfuna, þar sem það var ekki búið að setja markið niður, og hann stökk í körfuna og ætlaði að hanga aftan í henni eða eikkað og hann datt á gólfið og meiddi sig í hendinni.
Þetta var ógeðslega fyndið!!
Síðan sagðist hann halda að hann væri handleggsbrotinn samt gat hann kastað og gripið bolta.
Áður en það var mikið búið af æfingunni þá hætti hann, hann sat bara uppi á sviði nánast alla æfinguna og hélt að hann væri handleggsbrotinn.
Mig langar að fá momentið þegar hann hoppaði upp í körfuna á video þar sem þetta var ógeðslega fyndið.
Viltu ekki sýna þetta aftur fyrir framan cameru sigurjondadi???