Ég var hérna bara tjillandi þegar allt í einu að ég fékk óvænta heimsókn frá ökukennaranum mínum! Og hann ákvað að sýna mér hvar ökuskólinn minn er og lét mig keyra þangað! Víííí, fyrsti ökutíminn! Klessti ekki á!

En hinsvegar þá átti ég í vandræðum með kúplinguna og gírskiptingar, steig kúplinguna sjaldan í botn en hélt alltaf að ég væri að því og þess vegna gengu gírskiptingar illa, síðan sleppti ég kúplingunni alltaf of hratt … Eeeen ég klessti ekki á! Eða var ég búinn að segja það?

En allavega … JEI!!! =D