Er með varaþurrk núna og mundi þess vegna eftir þessu, ætlaði að senda þetta inn þar seinustu helgi þegar þetta gerðist en gerði ekkert í því, en allavega, oft þegar maður er með stíflað nef eins og ég var með þar seinustu helgi þá andar maður bara með munninum í svefni og vaknar með mjög þurrar varir. Ég lenti í dálitlu þar seinustu helgi sem ég veit ekki hvort tengist svona þurrum vörum en allavega, ég vaknaði sem sagt með geðveikan verk í vörunum.
Þá labbaði ég fram og kíkti í spegilinn til að sjá hvort það væri ekki allt í lagi með varirnar á mér og hvort það væri eitthvað að, jú jú það voru stórar rifur á báðum vörum og blæddi úr þeim =S
Það var ekki gott.