Já, í gærkvöldi tannburstaði ég mig. Vegna einskærrar gleymsku var það í fyrsta sinn í heila viku.
Allt gengur vel fyrir sig, maður setur hvítt tannkrem á og lala. Síðan skyrpi ég þessu nú út úr mér. Þá sé ég að tannkremið, sem áður var hvítt, er orðið rautt. Ekki bleikt, heldur rautt. Ekki blóðrautt alveg en þó var þessi litur frekar rauður en bleikur. Sem þýðir að þegar að ég tannburstaði mig kom meira blóð heldur en magnið af tannkremi sem ég notaði, og ég notaði alveg meðalmikið tannkrem.
'Tis always creepy.