Æ, sjáið þessa yfirmáta yndisfríðu snót - Það er stúlkan mín.
Sem ilmar eins og nýuppslitin ætihvannarrót - Það er stúlkan mín.
Já, rassgatið í upphutnum með uppáhellingum - Það er stúlkan mín.
Með undirhökur, spékoppa og túmatrjóða kinn - Það er stúlkan mín.

En hún á mann, já hún á mann.
Já, hún á afskaplega huggulegan mann.
Hún á mann og elskar hann.
Því ætla ég að drekka mig fullan og lemja lúsablesann þann.

Sjáið hana raða í sig rjómapönnsunum - Hún er stúlkan mín.
Með rabarbarasultutau í litlu tönnsunum - Hún er stúlkan mín.
Sjáið hana tipla um svo töfrandi að sjá - Hún er stúlkan mín.
Og tígulegur afturendinn vaggar til og frá - Hún er stúlkan mín.

En hún á mann, já hún á mann.
Já, hún á einstaklega skemmtilegan mann.
Hún á mann og elskar hann.
Því ætla ég að drekka mig fullan, fara svo til hans með stólfót að vopni, króa hann af og enda svo á því að lemja lúsablesann þann.

Sjáið hana hrína eins og stungið alisvín - Það er stúlkan mín.
Stumra yfir ræflinum svo þokkafull og fín - Það er stúlkan mín.
Já, sjáið hana siga pólitíinu á mig - Það er stúlkan mín.
Og segja mér að drullast til að hætta að bögga sig - Það er stúlkan mín.

Því hún á mann, já hún á mann.
Já, hún á ofboðslega myndarlegan mann.
Hún á mann og hann henni ann.
Því ætla ég að sitja af mér dóminn, fara svo heim og massa mig upp, drekka mig fullan og fara niður í bæ, finna þar fíflið, öskra aðeins á hann, hlæja eins og bjáni og ganga svo í að lemja lúsablesann þann.




Þetta var lagið Hún er stúlkan mín með Baggalút! Mjög skemmtilegt lag!