Ég fór á salat-bar einu sinni og sá margt af furðulegu fólki. Reyndar var það oftar en einu sinni. Í hádeginu á hverjum degi (með 2 undantekningum) í viku. Ég sá Pál Óskar í bleikum þröngum buxum… Hélt fyrst að þetta væri túristi. Svo var víst íslenska handbolta-liðið þarna en ég tók ekki eftir því:$
Svo var einhver gaur sem mætti á staðinn í engu nema pungbindi og einu skó. Það voru einhverjir strákar að segja mér að þetta hefði verið markmaðurinn úr ÍR (minnir mig) en ég sel það ekki dýrar en ég kaupi það.
Ég veit að þetta kemur málinu ekkert við. Mér bara datt þetta í hug og ákvað að tjá mig um málið.