“Jaaaaa….ég veit ekki ef við eigum að taka þessu.” sagði Lobsterinn
Þau voru í litlu en þægilegu eldhúsi, maulandi sóma samlokur.
“carbinieri?” stakk supernanny uppá.
“Nei ég held að lögreglan geti ekki bjargað honum, en þetta er býsna sorglegt, Miltisbrandur verður eflaust eyðilagður…” sagði Gellan
“Vitiði, ég bara nenni þessu ekki, ég hef betri hluti að gera.” sagði Lobsterinn
Í því gekk ***V***ansi inn í eldhúsið og spurði þau hvað þau ætluðu að gera
Satt að segja voru söguhetjunum alveg sama um Darth Bob.
“Neibb.” sögðu þau öll í kór og löbbuðu út og lokuðu á eftir sér.
“Þetta gekk nokkuð vel ekki satt?” sagði HerraFullkominn eftir stundarþögn
“Ahm, hann bjóst ekki við þessu, við gjörsamlega drápum hann með þessu” sagði supernanny sigurviss.
“En ég þarf að segja svolítið,” sagði Gellan allt í einu með glampa í augunum
Hún gekk að Lobsterman og smellti hann rembingskossi, Lobsterman var alveg steinhissa
OK núna kemur bara mesta rugl sem hægt er að skrifa í þessa sögu lesið þetta nokkrum sinnum til að melta þetta
Gellan123 hvarf eina sekúndu en birtist í svörtum blúndukjól og var með risa gleraugu sem gætu verið stækkunargler.
“óóó…ég skil, þú átt núna að segja að þú sért hér með frá svarinn óvinur okkar og Lobsterman mun ganga í lið með þér og hann mun reisa her af heilaþvegnum nöktum mönnum sem eru aðeins í svörtum g-streng?”
“Jaa..já það var planið en núna má ég spara mér ómakið og flýta mér í bækistöðvar mínar og halda áfram með peysuna sem ég er að prjóna…ciao!”.
Og nú var hún horfin, og Lobsterinn líka.
Söguhetjurnar gengu og komu að stórum helli og ætluðu að sofa þar um nóttina…en…damm damm damm damm!
Þar var maður sitjandi spilandi skák við fyrrum geðbilaðan mann sem vildi ekkert annað en heimsyfirráð, það er að segja að þetta var Kertaljos, en var núna góður…ég skil þetta varla sjálfur.
En maðurinn sem þau sáu var heldur til spes, hann var í brúnum slopp, reykjandi grænan vindil og var með pípuhatt.
“Halló?” sagði HerraFullkominn vongóður.
“Nehh hva e a sjaa?” sagði maðurinn
“ó endilega, viljiði ekki líka eitthvað að borða, ég er glorsoltinn” hélt hann áfram.
“jeg a ekke nett a borra tvii miur” sagði maðurinn.
“ehh…hvað heitirðu?” sagði HerraFullkominn til að fá að vita eitthvað um hann.
“Garth Dod” svaraðu hann
————
Ok, ég veit að þetta hljómar ansi líkt Darth Bob en þetta er ekki eins :P