Ég hafði ástæðu til, ég er einn af þeim sem ekki má segja neitt eða gera neitt án þess að það sé hlegið að því eða gert grín að því (ekki í góðum skilningi), þannig að auðvitað var ég dálítið feiminn við að skrifa hingað, því sumir þekktu nickið mitt.
Svo í vetur breytti ég um nick og eftir að hafa verið með það í nokkrar vikur ákvað ég að taka af skarið og prófa hvort einhver þekkti mig, og mér til mikillar ánægju fékk ég svar frá einum sem þekkti nickið mitt áður (I think) sem vissi ekki hver ég var.
Svo núna er ég frjáls ferða minna hér, fínt að hafa stað þar sem maður getur sagt það sem maður vill og verið stoltur af því :}