Jæja, kæru hugarar! Fimmtudaginn 26. maí klukkan 17:00 mun ég halda grillveislu hér á www.hugi.is/sorp. Vinsamlegast skráið ykkur fyrir klukkan 18:59:21 næstkomandi fimmtudag. Ykkur er velkomið að mæta með maka ykkar. Ef svo óheppilega vildi til að þið væruð með ofnæmi fyrir hnetum, ráðlegg ég ykkur að mæta. Það verða nefnilega engar hnetur í veislunni.
Þetta mun ganga þannig fyrir sig að þegar þið skráið ykkur sendi ég ykkur mynd af gómsætri pylsu og hálfs líters gosi að eigin vali. Síðan getið þið kóperað smjattið ykkar og fært inn á þennan kork. Hamborgarar verða aðeins gefnir góðborgurum.
Athugið að reykingar munu verða bannaðar. En hassneysla er annað mál.
Ykkur mun verða velkomið að stunda mök með maka ykkar, öðrum hugurum sem þið hafið aldrei séð áður, þið getið kóperað stunurnar hér inn á. Það er þó ekki skylda að hafa mök. Er það nokkuð?
Spariklæðnaður.
Allir að mæta!