Ah…

Þegar þú ræskir þig og gengur að sviðinu. Þegar þú grípur hljóðnemann með miklu látbragði. Þegar þú gefur plötusnúðnum merki um að snúa skítinn. Þegar lagið byrjar og þú gleymir textanum. Þegar það kemur í ljós að þú ert rammfalskur. Þegar þú ert púaður niður af sviðinu. Þegar þú mistúlkar viðbrögð áhorfenda og heldur að verið sé að fagna þér. Þegar þú réttir út hendurnar til að faðma salinn. Þegar þú færð grjótharða steinvölu beint í andlitið og rotast.

Listin að syngja.