Hver er ekki sammála því hjá mér, að kindur séu að reyna að taka yfir jörðina?

Pældu aðeins í þessu. Þær þykjast vera voðalega saklausar, búa svo til lítil, sæt lömb, og láta okkur síðan slátra þeim.

Ástæðan fyrir því að kindurnar leyfa okkur að taka lömbin og slátra þeim, er sú að þannig komast þau inní okkur. Þegar þú bítur í lambasteik, heldur þú kannski að lambið sé alveg dautt og viti ekki af þér. Ó, nei vinur minn. Eða vina mín. Lömbin eru enn með fullri meðvitund, og bíða eftir að þú kyngir þeim. Þegar þú ert búin(n) að því, þá skríður það sem þú heldur að sé kjöt af læri lambsins, en er í raun allir vitsmunir þess, uppí heila þinn og tekur yfir þig.

Passið ykkur á kindastofninum. Hann ætlar að taka yfir heiminn.