1. Í hádeginu: leggðu bílnum og sittu í honum með sólgleraugu.
Miðaðu með hárþurrku á bílana sem keyra framhjá. Athugaðu hvort þeir hægi á
sér.

2. Kallaðu sjálfa þig upp í innanhúss kallkerfinu. EKKI reyna að breyta rödd þinni.

3. Stattu föst/fastur á því að netfangið þitt sé: Xena-
Warrior-Princess@OCDSB.edu.on.ca eða
Elvis-the-King@OCDSB.edu.on.ca

4. Hvert skipti sem einhver biður þig að gera eitthvað fyrir sig,
spyrðu “má bjóða þér franskar með þessu?”

5. Stilltu ruslafötunni upp á skrifborðið með miða á sem segir
“Innbox”

6. Þróaðu með þér óeðlilega hræðslu við prjónadót

7. Fylltu kaffivélina með koffínfríu kaffi í þrjár vikur. Þegar
allir eru búnir að losna við koffínfíknina, fyllirðu á með
espresso.

8. Á allar kvittanir skrifar þú; Fyrir kynlífsþjónustu.

9. Ljúktu öllum setningum þínum með; Samkvæmt spádómum.

10. Ekki nota punkta.

11. Eins oft og mögulega hægt; hoppa í stað þess að ganga

12. Spurðu fólk hvers kyns það sé. Hlæðu brjálæðislega þegar það
hefur svarað.

13. Taktu sérstaklega fram í bílalúgusjoppunni að pöntun þín sé
“taka með”.

14. Syngdu með í óperunni

15. Farðu á ljóðakvöld og spurðu afhverju ljóðin vanti allan ryþma.

16. Hengdu flugnanet í kringum skrifborð þitt. Spilaðu
frumskógarhljóð af diski alla daga.

17. Tilkynntu vinum þínum fimm dögum fyrir partýið að þú komir
ekki því þú sért ekki alveg upplögð/lagður.

18. Biddu vinnufélaga þína að ávarpa þig með Gladiator- nafni
þínu, Rock Hard.

19. Þegar peningarnir koma út úr hraðbankanum hrópar þú “Ég vann!
Ég vann!!! Þriðja skiptið í þessari viku!!!!”