*er geðveikt svalur og sendi inn jólakveðjugrein til allra á þessu áhugamáli og þakka öllum fyrir liðið ár og óska ykkur hins allra besta og fæ auk þess átján stig fyrir þetta YEAH … aðrir stjórnendur gera þetta líka maaan*
Reynið nú að skemmta ykkur um jólin og haldið friðinn og guð veri með ykkur og blessi ykkur öll.
Gleðileg Jól /Sorp
<3
I'm a winner, I'm a sinner. Do you want my autograph?
Welcome, comrade! Skelltu bara “Ég er meðlimur í ”Ég vona að allir spammarar deyji kvalarfullum dauðdaga“ félaginu. Ef þú villt vera með í þessu félagi sendiru bara PM á Lobsterman.” í undirskriftina ^^
Takk fyrir og sömuleiðis, EN… Mér finnst mjög leiðinlegt að sjá stjórnendur nota “greinar” til að senda inn jólakveðjur til notenda áhugamálanna.
Með því að senda inn jólakveðju í “greinar” þá ýtið þið öðrum notendum út og lengra í burtu af “forsíðu” og sjáið þar með til þess að greinar notenda fá ekki eins mikinn tíma á forsíðunni, grein sem þeir eru kannski búnir að leggja mikla vinnu í og eru að vonast eftir því að fá einhver viðbrögð við ef þær fá að liggja örlítið lengur á forsíðunni.
Núna eru allavega 12 “greinar” í kringum forsíðuna sem allar fjalla um það sama - Gleðileg jól. Vonandi sér maður þetta ekki endurtaka sig um áramótin með áramótakveðjur!!!
Kveðja: Tigercop sem meinar ekkert illt með þessu nöldri en vill meina að virðing við notendur og vinnu þeirra sé það sem stjórnendur verði að hafa í huga ef þeir ætlast til að notendur séu þokkalega ánægðir með Huga.is…
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..