Greina keppni sorpsins 2000 og sjö Já ég og chocobofan höfum ákveðið að efna til samkeppnar á þessu áhugamáli, þannig að þið munuð hver snúast gegn hver öðru og reyna skemma fyrir hinum :)

Þetta á sem sagt að vera saga unnin af ykkur, algerlega ykkar verk. Í þessari sögu sem þið skrifið verða eftir farandi orð að eiga mikin þátt í sögunni. Ekki miskila samt.. þetta þarf ekki að vera aðalhlutverk eða eitthvað.

Valhneta
Sturtuhengi
Bangsi
Banani
Elltihrellir (ísl orðið yfir stalker, endilega spurjið chocobofan hvernig hann veit það, er forvitin af vita)
Raksápa
Eyðni
Landi


Nafn sögunar skal koma í heiti greinar ásamt þessu merki *greinakeppni pr0s*
keppnin mun standa í 2 heilar vikur og ef þið standið ykkur ekki þá lengjum við tímann! svo síðasti skiladagur er 18 júni 2007 kl 19:36!

Svo mun líklegast könnun fara í gang og kosið verður besta verkið og það verk fær að sjálfsögðu verðlaun. En ég ætla ekki að segja hvað það er muhahaaha.

Allir Allir Allir að taka þátt, þeir sem telja sig sanna sorpara taka þátt, hinir meiga eiga sig :) nei djók.. allir meiga vera memm. Vonandi gengur þetta betur en jólatrjá keppnin sem engin tók þátt í 8-). Annars fer ég að gráta :/



Skemmtið ykkur nú

(jájá.. fullt af innsláttar og stafsetningar villum Gosh!)