Jæja kæru sorparar, þessu hafið þið örugglega öll beðið eftir því þetta vilja örugglega allir en þora ekki að segja því sumir myndu örugglega líta á þetta sem geðveiki.
Hann Luigi ætlar í forsetaframboð.
Hann hefur lengi hugsað út í þetta en ekki verið viss um hvort hann ætti að gera það en svo eftir samkunduna í gær og alla kossana sem hann fékk hugsaði hann “Þetta fólk á skilið góðan leiðtoga”´
Ég vona innilega að þið munið öll kjósa hann í forsetaframboði sínu sem forseti Íslands og svo sem forseti alheimsins.
Hann mun redda öllum sorpurum mikilvægum stöðum í þjóðfélaginu og gera fólk með sorp fordóma að klósettskrúbburum og ýmsum stöðum af því taginu.
Einnig mun hann leggja mikla áherslu á að fangelsa píranafísk að nafni Dr.Doom sem er erkiandstæðingur hans og gæti jafnvel reynt að myrða hann meðan á framboðinu stendur þar sem hann mun koma oft fram opinberlega í sínu (svo við enskuslettum aðeins) “campaign”.
Hann lofar einnig að kyssa börnin ykkar ef þið viljið og gefa ykkur hatta alveg eins og þann sem hann gengur með.
Það eina sem þið þurfið að gera er að kjósa hann sem forseta Íslands og ef þið sjáið rauðan og grænan píranafisk að nafni Dr.Doom (líklega með skjaldböku sidekick með sér) þá endilega rotið hann og skellið honum í fangelsi því hann er óvinur Luigis mikill og öllum ber hætta af honum og illsku hans!
Ef þið slasit meðan þið reynið að yfirbuga hann þá mun Luigi borga allan sjúkrakostnað og ef þið látið lífið þá fá fjölskyldur ykkar skaðabætur upp á óímyndanlegar fjárhæðir eða Luigi lífgar ykkur við, fjölskyldan velur ;)
Ykkar, Luigi og Hugi