Guð hvað ég er ekki sátt…Í fyrsta skiptið vona ég að við komumst ekki áfram! (Það yrði alveg týpískt að við komumst loksins áfram núna, bara út af því að ég vil það ekki!)
Það væri best að við myndum fá ekkert stig, þá komast þau tvö vonandi niður á jörðina enda eru þau svo ánægð með sig að það hálfa væri nóg.
Mér fannst Ragnheiður vera með besta lagið, en lagið hennar var eiginlega of gott fyrir þessa keppni…að mínu mati.
Ég fílaði Dr.Spock :) Mercedes Club var alveg fyndið en hún syngur ekkert vel…
En í rauninni hefði ég viljað alla nema Eurobandið fara út!
Og djöfull var það asnalegt í lokin þegar Friðrik Ómar sagði “Glymur hæst í tómri tunnu”. Í fyrsta lagi, ef þú ætlar að fara með einhvern málshátt, drullastu þá til að fara rétt með hann! Og þetta kom líka úr hörðustu átt.
Ég finn til, þess vegna er ég