Nákvæmlega, ég er alveg drullufúl út í þetta f****** stjórnmálakjaftæði! Það er verið að skemma fyrir mér (og fleirum) það kvöld sem ég hlakka mest til á árinu bara fyrir eitthvað “Já, við erum búin að telja 6000 atkvæði og ætlum að tala við eitthvað leiðindafólk….bla”.
Mig langar að senda RÚV póst, en ég held það skipti engu máli fyrir þá. Svo þykjast þeir vera að sýna sigurflutninginn þarna inn á milli, en þá er þetta ekki einu sinni sá flutningur heldur flutningurinn úr keppninni sjálfri. Dj***** f******!