Enginn þekkir hann í Evrópu og hann er sko ekki frægur í Bandaríkjunum. Þetta Rockstar dæmi var bara einn af milljón raunverulegaþáttum sem eru á hverjum degi í sjónvarpinu í Bandaríkjunum. Enginn venjulegur Bandaríkjamaður þekkir Magna þannig afhverju ætti einhver Evrópubúi (fyrir utan Ísland) að þekkja hann?
Svo skiptir ekki máli að vera frægur, það skiptir máli að vera með gott lag sem nær fólki í fyrstu spilun. Margir frægir hafa tekið þátt í Eurovision og ekki komist neitt lengra en hinir sem voru ekkert þekktir. En aftur á móti hafa margir ORÐIÐ frægir eftir að hafa tekið þátt í keppninni.