Það er ekkert vegna þess að Birgitta vann ekki. Ég er mikill aðdáandi Birgittu og það hefði
verið gaman að sjá hana fara aftur í Eurovision en ég er samt ekkert tapsár.. Svona er þetta bara…
Ég er stolt af henni, hún lenti í 5.sæti.
En það er ekki lagið sjálft, það er flott. Þetta er bara eyðilagt með textanum og framkomunni og
hvernig hún klæðir sig. Og hvernig Silvía talar (Ég er svo töff…). Hún er eiginlega sko að
segja í textanum bara, oo, ég er svo töff, kjósið mig, allir hinir eru ömurlegir (öll hin
lögin hafa tapað…).. Mér finnst þetta ekki hæfa Eurovisionm, svona grín…
Ég á ekki mikla trú á því að hún komist í aðalkeppnina en svona er þetta bara… Við bara gerum okkur að fíflum…
Ég er ekki viss að Evrópubúar eiga eftir að fíla þetta en bara mín skoðun…