Ekki svo að skilja að ég ætli mér að hunsa beiðni þína en í augnablikinu hef ég mínar ástæður fyrir því að sjá mér ekki fært að gagnrýna manneskju á opinberum vettvangi. Því fylgir ábyrgð og ég þarf mína skýrustu hugsun til að geta það.
Ég vil því biðja þig um að tala við hina stjórnendurna, en jafnframt benda þér á að þolinmæðin þrautir leysir allar og það hefur aldrei drepið neinn að bíða smá. Það er betra að taka nægan tíma og vinna verkið vel en að drífa það af til að þóknast einum kvartandi notanda.