Greyhound station einhversstaðar í Alabama Bandaríkjunum, hvernig komst ég hingað, hvernig veit ég að þetta sé Alabama, hver er ég og af hverju horfir þessi kona á mig svona undarlega, reyni að muna síðustu daga en…finn fyrir undarlegum þrýsting í maganum, svona..ég-er-þarna-inni-vill-komast-út þrýsting.
Sé klósett merki og næ að ákveða að þrýstingurinn sé í blöðrunni, virðist þó vera annars konar þrýstingur, verð var við að konan sem horfði svo undarlega á mig stendur upp um leið og ég, lít við og já, hún lítur á mig, flýti mér á klósettið.
Það fyrsta sem ég sé inni á klósettinu er konan, hvernig komst hún hingað á undan mér, mín fyrsta hugsun er að ég verð að losa mig við hana, hver sendi hana til að fylgjast með mér, af hverju, og hver er hún..ég verð að komst héðan burt.
Hleyp út.
Ekki auðvelt þar sem þrýstingurinn í maganum virðist vera magnast.
Lít við, sé ekki konuna núna, en hún er nálægt..ég finn það á mér.
Sé leigubíl óljóst hægra megin við mig, breyti um stefnu en næ þangað of seint, leigubíllinn leggur af stað með gömlum manni sem heldur á litlum hundi..hann fær einhverja nautn út úr gulum uppvöskunar hönskum, eitthvað við það að taka til í stofunni, nakinn, nema klæddur gulum uppþvottunar hönskum, hann heitir brúnó er þriggja ára gamall og finnst gott að láta klóra sér á bringunni, hann tók fyrst eftir þessum afbrigðilegum hugsunum þegar hann gekk inn á gamla manninn taka til í stofunni, íklæddum engu nema gulum uppþvottunar hönskum.
Hvernig veit ég þetta, er þetta raunverulegt.
Stanza til að ná andanum og að koma reglu á hugsanir mínar, hvernig veit ég þetta með hundinn, sá ég hugsanir hans í augunum þegar hann leit á mig, eða þekki ég…rúta keyrir hjá, sé spegilmynd af manneskju, það er konan sem elti mig..sný mér við, stór verslunar gluggi, sé spegilmyndina aftur, hún horfir á mig, ringluð og undrandi..örlítið ráðvillt, þetta er ég…spegilmyndin er ég, en afhverju var ég að elta mig.
Mamma,…mamma, ég lít niður,..mamma,..það er lítið barn að að tala við mig, segir mig mömmu…Birna, við höfum leitað af þér í þrjá daga núna,..hver er hann, þessi maður með barninu,..við verðum að leita okkur aðstoðar, þú gerðir okkur svo hrædd, og þú getur ekki gert ófædda barninu okkur þetta lengur, þú getur ekki gert okkur þetta lengur,..barnið er farið að gráta, en hver eru þau, afhverju þekki ég ekki þetta fólk, eru þau að leika eitthvað á mig, er þetta er allt undirbúið af hærri öflum, get ekki hugsað skýrt, svart, er að færast nær, svartnætti, finn til máttleysis..ég get ekk……… ,..einhver hringi í sjúkrabíl, Birna, Birna talaðu við mig, Birna………..