1
Hún var eins fögur og sólin - eins og alltaf. Súkkulaðibrúnt hár hennar liðaðist rétt niður fyrir kjálka. Um leið voru komin nokkur hvít korn í hár hennar sem voru eins og stjörnur í hári hennar.
Smágerður líkami hennar var eins brothættur og alltaf, föl húðin hrópaði á athygli á móti dökkum fötunum sem hún var í. Hvernig sem hún gerði það þá náði hún einhvern vegin að láta rúllukragapeysu og jogging buxur líta út fyrir að vera nýjasta tíska.
Kattarlaga augu hennar - með örlítið af hverjum lit í sér, brúnan, grænan, bláann, gráann og jafnvel örlítið af appelsínugulu - Horfu spyrjandi á mig og þykkar varir hennar opnuðust örlítið í undrun svo sást í endann á skjannahvítum framtönnunum.
Honum leið eins og hann ætti alls ekki að vera þarna, hann hafði ekkert að gera hjá stelpu svo fallegri, hann ætti ekki séns í hana en þrátt fyrir það var hann þarna.
,,Tanja, ég verð að tala við þig,' sagði hann, óstöðugri röddu. Hún brosti daufu brosi en opnaði síðan hurðina uppá gátt og benti mér að koma inn.
—–
Þetta var lengra en ég ætlaði, vona að það sé allt í lagi =P
Bætt við 4. nóvember 2008 - 15:32 opnaði síðan hurðina uppá gátt og benti mér
Afsakið, alveg óvart, átti að vera
honum =)