Einu sinni í fyrndinni voru fjögur lítil spurningarmerki innan sviga(????). Þau ætluðu að lauma sér til valda í landinu og ná síðan heimsyfirráðum eftir að hafa stofnað íslenskan her og ráðast fyrst inn í Vestmannaeyjar, og síðan á Færeyjar. Restin af heiminum átti síðan að gefast upp að sjálfstáðum þegar hann yrði vitni af þessu ógnarafli íslenska hersins. Þá ætluðu fjögur litlu spurningamerkin innan sviga (????) að skipta heiminum á milli sín, en þegar að því kom þá gerðust þau öll svo frek að þau rifust nær endalaust þangað til að sólin kom upp og þau breyttust öll í steina sem að sukku svo að lokum í Kyrrahafið. Já, þannig að þið sjáið að það er ekki nóg að vera bara frekur og valdamikill, maður verður líka að passa sig að vera með kúta þegar maður kemur nálægt vatni.
Endilega kommentið.