Það var fallegur dagur þegar Jón dróg gluggjatjöldin frá glugganum á skrifstofunni. Hann settist niður í nýju fallegu skristofunni og á nýju fallegu eyjunni sem að hann var nýbúinn að kaupa á eBay. Sólin skein inn og hann tók því rólega meðan að hann gæddi sér á nýtýndum banana. Þessi eyja skildi vera sú besta í heimi og fyrsta sinnar tegundar, fyrsta viðurkennda bananalýðveldið. Það er komið nóg af því að bananastjórnmálamenn skuli þurfa að starfa í skugga lýðræðis. Núna fyrst gætu þeir sameinast á þessari fallegu eyju.
Jón var orðinn pínu þreyttur og hallaði skrifborðsstólnum aðeins aftur. Tilfinningin var unaðsleg, aðeins 3 tímar og þá yrði hann yfirbanani eyjunnar og gæti gert hvað sem er. Augnlokin fóru að þyngjast og Jón hélt áfram að hugsa…….
Vá, þetta verður frábært, ég get farið í veiðiferðir á kostnað skattborgara, ég og Hlölli verðum fínir þar. Bara 3 tímar og allt þetta rætist. Ég hlakka svo til að labba niður í miðborg á rauðum dregli með banana á hausnum í nýju jakkafötunum sem var verið að sérsauma úr úrvals bananahýði frá afríku. Fólk mun krjúpa og gefa mér banana, það munu allir vilja vera vinir mínir því ég mun ráða ÖLLU. Ég held ég byrji á að loka verstæðinu hans Danna, Danni hefur alltaf verið hálf leiðinlegur, þoli ekki hvernig hann er. En vá, ég hlakka svo til, 3 tímar í að ég og bananakórónan verðum eitt. Kannski ég byggji þá við höllina mína, mér finnst skrifstofan orðin doldið lítil. Væri líka nett að fá garðaþjónustuna til að útbúa gólfvöll í garðinum mínum, ég gæti breytt einvherjum reglugerðum fyrir þá í staðinn, það væri fínt, ég elska gólf. Ég trúi þessu ekki, 3 tímar og þá er margra ára áætlun fullkomnuð. Að trúa þessu, ég sem byrjaðir bara lítill kall á Íslandi. Í dag verð ég krýndur bananakonungur. Ég ætla mér sko að breyta öllum reglum sem ég fíla ekki. Og síðan ef að einhver er með stæla eða mér líkar ekki vel við hann og hans stefnu þá get ég sett lög á hann, engin getur stoppað mig því ég er BANANAKÓNGURINN. Ég verð að fara skrifa alla sem mér líkar illa við niður á blað, gera lista yfir alla sem ég þoli ekki og þeir eru dauðans matur þegar bananinn er kominn á höfuð mitt. En hey hvar er blað? Ég verð að finna það…………………………

*HURÐ OPNAST MEÐ MIKLUM LÁTUM*

Jón hrekkur upp, hann hafði sofnað yfir ræðuskrifum. “ Jón minn, Halli er kominn”……..
oh, ég hata að vera stjórnmálamaður á íslandi…………………