Sönn saga, nöfnum breytt……..og sögunni eitthvað smá :)


Já….ég vissi vel að við vorum ekki par, en mér leið svo vel í kringumm hann og hafði átt hann svo lengi að.
Við vorum byrjuð að kúra og svoleiðis og alltaf egar við hittumst héldumst við í hendur og kysstumst.

Svona var það í dáldinn tíma, og eina helgina fórum við í bíó með vinum okkar, Árni og Kata.
Jæja, þau þekktust og allt en voru samt ekkert að dúlla sér eins og við.

Ég hafði tekið eftir því að hann hafði horft dáldið á Kötu en hélt það væri nú ekkert alvarlegt……ég hafði rangt fyrir mér.
Þegar við vorum í bíó hafði ég tekið eftir því hvað hann hafði verið mikið utan í henni á leiðinni í bíó, þar sem við fórum gangandi.
Við vorum búin að vera knúsast og kyssast allan daginn, hún sá það meira að segja…….líka Árni.

Þegar við vorum í bíó sat hann nær hanni og talaði mikið við hana og þau þrjú létu svona eins og ég væri ekki þarna mest allan tímann.
Ég fann fyrir reiði og var svo leið yfir því að ég væri að missa hann.
Hann sem var mér allt.
Á leiðinni úr bíó, hélt hann í hendina á okkur báðum.
Síðan sleppti hann mér, og mér leið eins og við værum á fjalli og hann hefði haldið mér uppi…..og misst mig.

Þetta var vond tilinning…….svo vond að það var eins og hníf hefði verið stungið djúpt í hjartað og rifið það úr.
Hún gerði ekkert, ekki neitt, og hún vissi alveg hvað mér fannst um hann.
Ég var svo sár og reið, ég hefði viljað öskrað.
Daginn eftir fór ég heim til Árna, þar var hann og Kata…….hann hélt í hendina á henni en þau vorum samt ekkert að knúsast og kyssast eins og við vorum.

Seinna í vikunni, frétti ég það að hann væri hrifinn af henni……..væri að drepast úr ást.
Ég hætti að tala við hann í langann tíma……var pirruð útí Kötu allar næstu vikur þar til að hún segir mér að hún þoli hann ekki.
Mér leið betur, en hann talaði lítið við mig.

Svo fór mér að vera sama, fór að hugsa um annað.
Hitti góðan strák og hann var bara fullkominn…..að hluta til.
En hann var ekki nógu fullkominn……hann var ekki eins og HANN.

Ég byrjaði að tala meira við HANN……en það hafði ekkert að segja, hann var að nota mig!

Í dag, hef ég gleymt honum að mestu leyti. Tala stundum við hann en það er eitthvað lítið.
Góði strákurinn sem ég hitti er svo góður að það er ekki annað hægt en að elska hann, og það geri ég af öllu mínu hjarta.


En hann er samt ekki HANN……