Veran stóð í skugganum af trjánum, það var rigning og regnið steyptist beint niður. Veran var orðin rennandi blaut. Hún beið og fylgdist með allri umferð um þennan fáfarna stíg.
Hún vissi að það kæmi að því að maðurinn léti sjá sig og þá væri biðin á enda og veran vissi líka að þá yrði blóð á þessum fáfarna stíg og blóð á höndum verunnar, gleðin og spennan hríslaðist um kroppinn. Veran dró skykkjuna betur að sér sem í raun gagnaðist lítið þar sem skykkjan var orðin rennandi blaut.
Veran hafði lengi beðið eftir þessu, þessum manni og blóði hans. Veran handlék hnífinn sinn í stutta stund. Tréin virtust halda niður í sér andanum og himininn gráta það sem koma skyldi. Eldingu sló niður og lýsti upp dökkar útlínur á milli trjánna, undir hettunni dönsuðu skuggar í andlitinu án myndar.
Ekki var hægt að sjá bros verunnar en bros var þar þó, því þruman sem fylgdi eldingunni öskraði syguróp til að styðja skuggann sem stóð þarna í myrkrinu. Veran var farin að undirbúa þennan langþráðan dauða þessa manns, hann kæmi ríðandi á hvítum hesti eftir stutta stund. Veran stóð sem stytta, trygg við tímann. Hún hreyfði ekki einu sinni litla fingur, varla blikkaði augunum þótt það lækju regndropar niður andlitið.
Það var enginn ótti í loftinu aðeins eftirvænting. Það var eins og allt sem í kring spyrði sömu spurningarinnar “Tekst henni það?”.
verann brosti kalt, hún heyrði hófa hljóð, hann var að koma. Veran horfði djúpt inn stíginn.
- Ekki langt núna. heyrðist hvíslað grimmilega.
Eftirvæntingin byrjaði að hringsóla um þennan fáfarna stíg. Tréin hvísluðu sín á milli en snarþögnuðu er þau urðu vör við stingandi augun sem voru full af grimmd og reiði.

Grunlaus reið maðurinn og nálgaðist örlög sín. Hesturinn var farinn að ókyrrast en reiðmaðurinn reyndi að stjórna hesti sínum og róa hann. Reiðmaðurinn var sjálfur ekkert hrifinn af þessum fáfarna stíg en núna var þessi stígur afar hentugur fyrir þetta mikilvæga erindi hans. Fylgdarmenn hans, tveir, voru rétt á eftir honum.
Reiðmanninum tókst að róa hest sinn eða það hélt hann, hesturinn gafst bara upp við að reyna að vara húsbónda sinn við hættunni sem frammundan beið. Hesturinn hélt treglega áfram, en áfram þó. Reiðmaðurinn stýrði hesti sínum órólega, hann varð bara að komast á áfangastað og það með hraði , þetta gæti orðið og myndi líklega verða ótrúlegur dagur, besti dagurinn í lífi hans.
Skyndilega stóð vera á miðjum stígnum og hesturinn hneggjaði ógurlega. Veðrið hafði þagnað, hélt niðri í sér andanum.
- “Vík frá.” sagði reiðmaðurinn ákveðið og öruggt en Veran hreyfði sig ekki.
- “Vík frá, ég er í mikilvægum erendagjörðum ” reiðmaðurinn reyndi aftur en veran svaraði þessu ekki.
En all snögglega stökk veran að reiðmanninum og reif hann niður af hestinum. Reiðmaðurinn var ekki undir þetta búinn og var því of seinn til að grýpa sverð sitt áður en hnífurinn stakkst á kaf í brjóst hans. Veran horfði köldum augum á manninn og á það sem hann hélt dauðataki á í annari hendinni. Veran beygði sig niður og reif hlutinn úr hendi reiðmannsins sem reyndi að halda eins fast og hann gat, en kraftar hans runnu frá honum.
Veran brost grimmu brosi, hún lifti glerskónum upp og handlék hann eitt augnablik svo lagði hún skóinn á jörðina og mölvaði hann fyrir augum reiðmannsins, augu hans fylltust tárum og brostinni von.
Veran tók sverð reiðmannsins og stakk því af öllum krafti í gegnum hjarta hans.
Blóðið jóst upp og sverðið varð rauðleitt, litað af lit ástarinnar… á sömu stundu laust niður fjöldi eldinga og þrumurnar hrópuðu sigrihrósandi, veðrið hélt ekki að sér lengur, tárin byrjuðu að dropa rólega niður sem jókst með hverrri sekúndu, himininn var aftur byrjaður að gráta.
Reiðmaðurinn starir brostnum augum upp í táraflóðið og ást hans liggur nú á þessum fáfarna stíg. Stígurinn alblóðugur og hesturinn horfinn þegar tveir reiðmenn koma að líkinu.

Hvísl verunnar barst með vindinum…
“Mjallhvít fær ekki að vakna” sagði veran, rétt áður en hún lagði af stað í næsta ævintýri.
G