Þetta er mín fyrsta smásaga svo dæmið mig mjúklega
Eitt sinn fyrir löngu áður en maðurinn varð til bjuggu á þessari plánetu Guðir sem voru hreistugri en maðurinn og voru galdrar þeirra og máttur mikill. Voru þessar verur voru nú bara yfirleitt kallaðir Guðir.
En sögur fara að fleiri máttugum verum heldur en Guðum, það voru líka guðlegar verur af hinu illa fara þar fremst í flokki orkar og tröll, bjuggu flestar þessar verur í ríki sínu Sótheimum á meðan Guðirnir bjuggu í Ljósheimum.
Bani var Orki sem var mikill af vexti, hann er hugrakkur, hann er leiðtogi, djarfur og snjall. Átti Bani eftir að verða bölvun fyrir alla Guði. Hann var besti hermaður Sótheima og átti hann brynju sem þakti hann allan sem var svo sterk aðeins hin sterkustu sverð bitu í gegnum brynjuna.
Bein Sölva voru gerð úr silvri og var hann bogamaður góður en hann átti boga sem missti aldrei marks. Allir Sem bjuggu í Sótheimum óttuðust Sölva en bardagahæfileikar hans voru mjög miklir. Bogi Sölva var svo öflugur að í hvert sinn sem hann skaut af boga sínum myndaðist hvina sem heyrðist alla leið til Sótheima og var hún svo sterk að rok myndaðist í kringum hann allan.
En Bani var lævís hann stal skóm sem hétu mjúkir af Trölli sem hét Gígur sem bjó í helli sínum í Sótheimum. Þessir skór voru gerðir úr hinu fínasta silki fyrir fætur trölla svo að gígar myndu ekki myndast þegar hann gékk.
Gígur elti upp Beina leiðtoga sótheima til þess að fá útskýringar á þessu Beini sagði að Guð sem héti Sölvi hafði tekið skóna hans. Reiddist Gígur þessu mjög og fór hann til Ljósheima, í reiði sinni sparkaði hann upp dyrnar á Ljóshöll og heimtaði að fá að tala við Sölva.
Þar Krafðist Gígur þess að fá skóna sína aftur, ekki gat Sölvi orðið við þeirri kröfu þannig í bræði sinni stappaði Gígur á Sölva en áður en það gerðist kom Sölvi skoti af boga sínum við það myndaðist svo mikið rok að það fleygði þeim báðum í loft upp.
Táraðist Sölvi við þetta svo myndaðist mikið vatn. Þegar Gígur lenti á jörðinni myndaðist mikill gígur sem vatnið rann ofaní og varð þannig til Gilli á sem var líst upp með með silvri sem talið er vera úr beinum Sölva og er áin heit sem er vegna heits blóðs Gígs sem rennur úr sárum hans á botni áarinnar að þessum degi. Þessi á lýsir upp allt ríki Ljósheima enn þann dag í dag.