Veit nú varla hvort að þetta verði flokkað sem grein, en þetta er það fyrsta sem að ég sendi inn. Ef að uppsetningin fer í taugarnar á ykkur, eða stafsetningin þá verðið þið bara að fyrirgefa mér:
——-
Að muna
Að vera aðeins fimm ára og að geta ekki greint á milli því sem er rangt að gera og því sem er rétt.
Að vera á leik,í kjallara í fjölbýlishúsi þegar að eldri strákur kemur að.
Að vera forvitin ljóshærð stúlka.
“Leggist á gólfið”
Að vera lítil og hrædd.
“Ég ætla að sýna ykkur svolítið”
Að geta ekki hlupið í burtu.
Að liggja á gólfinu, íklædd fötum.
Að horfa á hann renna niður buxnaklaufinni.
“Svona..”
Að finna hann nudda sér upp að manni.
Að sjá svipinn á honum.
“Nú þú”
Að sjá hann gera það sama við hana.
Að rísa upp.
“Þið segið engum, ok?”
Að vera sextán ára.
Að muna þetta ennþá.