Sjæsa mann, þú ert að ganga af mér dauðum. D-A-U-Ð-U-M!

Gengur um í þessu helvítis hvíta drasli sem á að kallast bolur og þykist vera svo helvíti kúl! Nehei, slíkt gengur ekki í MÍNUM HEIMI kallinn minn. Þú verður að vera með rauða litinn á hreinu til að fá far með mér kallinn minn!

Allavega, gakktu frá þessu drasli og drullaðu þér hingað! Núna! Hvar ertu? AH!

Ekki læðast svona aftan að mér mannskratti, hvað ertu að reyna að gera, drepa mig eða? Ef þú gerir þetta aftur sný ég þennan lunda þinn úr hálsliðnum og ekkert bull! Mér er skítsama þó þetta sé páfagaukur, þetta er allt eins!

ÉG KEYRI!

Hvað eru þessi helvíti að gera þarna, ha? Þykjast eiga veginn! Ég skal sko sýna þeim hvernig á að keyra… Tökum framúr þessu hægfara helvíti, það tefur okkur um fleiri mínútur með þessu helvítis dóli!

*KRASS!!!!!*

*BABÚBABÚBABÚBABÚ*

Hei… Ekki klippa í bílinn… Eruði klikk? Hei… Hei… Vá, ég er syfjaður… Úff… Ahhh………