Halló stílabók!
Þetta er bara ég, sú sem eitrar þig með bleki og blýi á hverjum degi.
Ég er búin að skrifa náttúr - og eðlisfræði í þig í dag, hvernig finnst þér það?
Marta biður að heilsa þér, hún er líka að eitra stílabókina sína.
Kannski er allt í lagi að við eitrum fyrir ykkur, finnst ykkur það?
Þú ert voða falleg, og hvít og mér finnst gráu línurnar þínar afskaplega hjálpsamar og aðlaðandi á að líta.
Hvernig er annars að vera stílabók? Er það ekki svolítið þreytandi? Liggur annaðhvort á borðinu og lætur eitra fyrir þér eða ferðast um í tösku með allskyns bókum og dóti.
Annars var ég að pæla.. Þegar þú ert orðin full, hvað gerirðu þá? Þér er bara hent eitthvert og svo tekin upp endrum og sinnum og svo er þér hent endanlega.
Ég er búin að finna á þessu jákvæða hlið, þú verður kannski dagblað eða afmæliskort eftir endurvinnsluna.