Ég var ungur, hálf fátækur, svangur og grannur og hafði lent í hremmingum á yngri árum er ég hringdi í hið “sviksama” auðvald og bað um bein að naga af alsgnægðar borðunum þeirra. Sá sem var í forsvari fyrir auðvaldið svaraði og hlustaði á mig biðjast bónar minnar, en sagði ekki neitt! Í fyrstu hugleiddi ég hvort að þögnin þíddi ekki bara, já, ég fengi bein að naga og örlitla hjálp í lífinu! En engva gæsku var að finna í tón raddarinnar svo ég fór að hugsa hvort það væri ekki bara þannig að viðmælandi minn passaði sig á að segja sem minnst, því það er víst svo að fá orð bera minnsta ábyrgð. Svo ég tók til þess ráðs að biðja til Guðs, í hljóði, um svar um hvað ég skyldi gera. Vegna þess að ég hafði heyrt að hann væri algóður og auðvaldinu æðri. Ekki stóð á svari. Þó trúlaus hafði ég verið lengi yfir æsku mína. Hann sagði er hann blés mér inn svarið í anda, þú átt mikið erfiði framundan, en munt áorka miklu í mínu nafni. Og þá spurði auðvaldið loks hvort eitt bein kallaði ekki bara á annað! Ég svaraði og sagði: eins og dagur kallar á nótt. Þögn. Og svo segir Guð því auðvaldið hélt sér í þögninni: Hjá mér verður þú ekki hlunnfarin andlega sem veraldlega. Fyrirmæli hans voru svo þessi:
Dreptu fugl og farðu til vítis og hittu skrattann. Vegna þess að þú fæddist
saklaus sál og þú hefur verið skírður og fermdur í mínu nafni og hefur
játast mér oft sinnis eftir það í laumi og sál þín er mín löglega eign á
pappír á jörðu sem á himnum. Og er þú kemur þangað mun allur vindur úr honum fara. En semdu við skrattann um matseldina á fuglinum, sagði hin almáttugi meistari, vegna þess að ég hef ráð við öllum þínum vanda. Þér verður ekki meint af þó sársaukinn verði mikill er ég læt þig falla örlítið úr náð minni. Og þótt þú gleymir Guði, þá gleymi ég ekki þér.
Og margoft hefur þú verið að vinna fyrir mig ómeðvitað sem minn vöndur. Ég arkaði því niðrað síldarplani og fór yfir varnargarðinn þar niður við höfnina. Þar tók ég mér stein í hönd og kastaði í áttað múkka sem flögraði þar við útrennsli frystihússins í leit af æti, líkt og ég. Ég hitti hann strax í höfuð stað og dauður hann féll til jarðar. Ég tók hann upp og sagði: Nú hef ég þetta hræ, Guð minn góður, og löng er leiðin til vítis og til baka, og vart verð ég samur eftir það En lífslöngun mín er mikil og því hlýði ég þér. Hann endur tók það sem hann hafði áður sagt er hann sagði það er erfitt verk og hart framundan, en þú ert í hjarta góður, þó stundum þú gleymir gæskunni í hörðum heimi. Því ætla ég að bera þig þína leið svo þú finnur ekki fyrir neinu, er þú kemur til baka frelsaður í mínu nafni mun allt verða nýtt. Svo farðu nú og blótaðu Skrattann, endur tók Guð, þar til að hann tekur við þér og opnar fyrir þér sínar dyr. Svo ég lagði af stað með fuglinn á öxl og byrjaði að kalla á skrattann.
Og hann lét blekkjast og bauð mér til sín niður í vítin sjö. Ég bankaði á hverjar vítis dyrnar hver á fætur annarri og við þá sjöundu kom skrattinn til svara og opnaði fyrir mér hreinn sem aldrei fyrr. Hann var í sjalket, með slaufu og á höfði hann hafði Pípu hatt. Ég kom beint fram og sagði: Hæ ég hef hér fugls hræ! Hann Sagði: Ja, komdu inn drengur og við skulum ræða saman og hann muldraði um hrun og að guð hefði nú snúið á sig. En hann bauð mér sæti, tók af mér jakkann. Svo rétti hann mér kokktesblöndu og bauð mér Díesapan. Ég afþakkaði pent en sagðist hafa heyrt að hér væri heitt og spurði hvort ég gæti ekki minn múkka hér matreytt. Hann sló sér á lær og skelli hló og sagði nú er þú bankaðir hér allur eldur dó. Því ræfillinn þú ert Guði merktur og ert verkfæri hans. Hann fuðraði upp áður en ég náði að spyrja. Hvað hefði orðið um þá vítisloga sem brennt hafa mannkinn um aldir. Rödd hans heyrði ég þó í fjarska. Og hann sprakk úr hlátri og sagði nú er minn samningur útrunninn. Hví þá það spurði ég þá út í loftið. Vegna þess að flestir eru fermdir og skírðir og hafa játast almáttugan Guð sem er í raun minn faðir. Og nú er ég máttlaus og verðlaus með öllu og minn máttur er uppurinn og verð bréfin mín féllu í verði. Ég bað Guð að blessa hann og hélt til baka mína leið svangur og þreyttur. Settist niður eftir áralanga leið og skrifaði þessa sögu…