Það var dag einn er ég sá´ann, hann var klæddur í íþróttabuxur og stuttermabol. Hann leit til mín og sagði hæ og ég sem var með hjartað í buxunum náði þó að drulla upp úr mér hæ-i á móti.
Ég var fljót að strunsa inn á klósett til að jafna mig, ég leit í spegil og myndin var hræðileg, ég var alrauð í framan og ef ég hefði verið borin saman við epli þá hefði ég vinningin.
Það var tveim kvöldum áður sem ég hafði talað við´ann í sms-i og hann tók þessu barasta vel og sagðist alveg vita hver ég væri og myndi pottþétt tala við mig í skólanum. Það kom ekki sá dagur að hann gerði það ekki og við vorum farin að tala um að fara jafnvel í bíó saman og ég alveg í skýjunum yfir öllu þessu. Vikurnar liðu og við ekki enn farin að fara í bíó, hann sagðist upptekinn með vinnuna og allt, enda líka í Meyju merkinu. Það kom þó að hann bauð mér loks í bíó og sú ferð gleymist seint.
Hann var riddarinn á hvíta hestinum þegar hann kom og náði í mig á bílnum sínum og algjör herramaður, borgaði miðann minn og opnaði fyrir mér hurðar.
Eftir bíó fórum við á rúntinn í miðbæinn og þar sem veðrið var alveg æðislegt ákváðum við að ganga smávegis, við hittum nokkra félaga úr skólanum sem spurðu hvað við værum eiginlega að gera saman. Prinsinn tók málið í sínar hendur og sagði að við værum búin að vera að dúlla saman í smátíma, tók í höndina á mér og leiddi mig af stað.
Þegar við komum að fámennum stað stoppaði hann og kyssti mig innilegum kossi og sagðist hafa viljað gera þetta allt kvöldið. Við snérum við og gengum í átt að bílnum hans og ókum heim til hans, hann var nefnilega einn heima. Þegar við komum heim til hans setti hann tónlist á og fyrr en varði vorum við í þessu líka hörku keleríi og ég varð að þessari undirlátu persónu og lét eftir að sofa hjá honum, mitt fyrsta skipti.
Daginn eftir keyrði hann mig heim og ég hélt að eftir þessa æðislegu nótt værum við saman en þá kom annað í ljós í skólanum, hann talaði ekki við mig og þegar ég mætti honum leit hann ekki á mig, það var þá sem ég vissi að allt þetta var bara til að fá mig í rúmið og ekkert meir, ég frétti að hann hafði gert veðmál við félaga sína um að hann gæti alveg fengið það hjá mér og það léttilega. Þarna stóð ég ein eftir með brostið hjarta og sálin í hakki.