Ástæða þess að ég skrifa þér bréf er sú að ég þarf að
sýna þér hug minn til þín. Tilfinningar mínar brenna. þú
lýsir upp minn tóma heim, heim án tilfinninga, því þær fara í
annað. Tilfinningar mínar eru heitari en ég hef fundið áður,
unni ég þér það mikið, ástin mín. Þig á aldrei eftir að
gruna hve heit mín ást er til þín.
Ég þrái að rétta þér þetta bréf næst þegar við hittumst, líta í
guðdómleg augu þín, kyssa þig á vangann og rölta burt.
En aðstæður lífsins koma í veg fyrir það, þú ert hans. Ekki mín, ég
leyfi mér að horfa á þig, brosa til þín, hvað sem er til að
sitja nær þér en aðrir. En ég veit ekki, lífið er svo flókið,
kannski áttu aldrei eftir að lesa þetta bréf, hvað þá skilja. En
annar á þig, þína ást. Þitt bros.
þótt ég þrái þig þá veit ég að þú elskar hann. Það er ekki mitt
innræti að eyðileggja það. Ég vona að þú eigir gott líf framundan,
gott líf.
Ainar/01