á gólfinu fyrir framan eru kassar sem ég þarf að opna og taka upp úr, í þessum kössum er líf mitt, lífsreynsla mín og jafnvel óvelkomin atvik.
Fyrsta verk mitt er að opna alla þessa kassa og horfast í augu við innihaldið, það er ekki auðvelt verk og því verð ég að gera það ein, enginn annar veit hvernig á að opna kassana og það er svo margt brothætt í þeim.
Næst er að horfast í augu við innihaldið. Tína upp úr kössunum og fara í gegnum innihaldið, ég þarf að taka hvern hlut og skoða hann og spá í hvar ég á að setja hann.
Hver hlutur hefur merkingu fyrir mig og þarf ég minn tíma til að skoða í gegnum kassana til að finna það sem ég vil setja upp í hillurnar, setja í geymslu eða henda. Það er mitt verk að sjá fegurðina í því sem ég vil halda og mikilvægi þeirra hluta sem ég tel að verði að geyma.
Það er mitt verk að vera meðvituð um að geymslan er ekki endanlegur staður og það þarf að fara þangað reglulega til að tékka á því hvort eitthvað sem þar er hafi orðið fallegra með tímanum eða sé í lagi að henda, það er verk sem ég þarf ekki að gera ein því einhver annar gæti bent mér á fegurðina sem ég sá ekki í fyrstu eða sýnt mér gallann sem ég sá ekki.
Þegar kemur að því að raða í hillurnar þá fyrst er ég tilbúin fyrir utanaðkomandi aðstoð.
Á meðan ég eða við saman röðum í hillurnar get ég talað eðlilega um hvað hver hlutur merkir og gildi hans fyrir mig. Út frá því verða til umræður um hlutina og vegna þess að talað var um þá og spáð í þeim, þá kemst ég að því að sumir hlutir eiga að fara í geymsluna eða í ruslið, eins ætti ég að ná í einhverja hluti niðri í geymslu og setja í hillurnar eða jafn vel henda. Það að raða í hillurnar getur tekið tíma og verður að vanda sig við það. Á meðan raðað í hillurnar þá er verið að raða lífi mínu, tilfinningum og framtíð minni í það sem ég mun á endanum þurfa að stilla upp fyrir framan aðra og segja: svona er ég.
G