Félagsfræðabraut.
Ég valdi hana vegna þess að ég hef meiri áhuga á samfélagstengdum greinum heldur en raungreinum eins og eðlisfræði og efnafræði.
Síðan eftir heilt ár ákvað ég að stefna að viðskipta- eða hagfræði í háskóla.
Hmm, hugsaði ég, það er eiginlega must að taka Stærðfræði503, frekar skynsamlegt ef maður stefnir á þessar greinar í háskóla. En Félagsfræðabrautin hefur bara tvo stærðfræðiáfanga í kjarnanum… what to do, what to do?
Ég talaði við námsráðgjafa, útskýrði mál mitt og spurði hvort ég þyrfti að skipta yfir á Náttúrufræðibraut til þess að taka heila 5 stærðfræðiáfanga.
Nei sagði hún, þú getur tekið stærðfræði í Kjörsvið á öllum brautum hérna í skólanum(MH). Þannig að braut skiptir alls ekki öllu máli þegar það kemur að framtíðar menntunarmöguleikum.
Þó að það sé reyndar mjög æskilegt að taka nokkra líffræði áfanga áður en maður fer í læknisfræði þá er ég einungis að segja:
Þú ert ekki fucked þótt þú sért á “vitlausri” braut.