Þetta er í rauninni ótrúlega einfalt.
103 þýðir að þú færð 3 einingar fyrir áfangann, 100 þýðir að það sé fyrsti áfanginn í röðinni.
Þannig tekuru t.d. Stæ103 fyrst, síðan 203, og þar á eftir 303, osfrv.
Svo inná milli koma auka áfangar sem heita þá t.d. stæ533, sem þýðir þá að þú þarft að vera búinn með 400 áfanga (stæ403) (til að komast í 500-áfanga), og að þetta er ekki hluti af aðal línunni, heldur til hliðar.
Veit ekki hvernig þetta er síðan í öðrum skólum, en í MH tekurðu t.d. stæ103 og stæ263 en ekki stæ203 ef þú ert á félagsfræðibraut, vegna þess að 263 er léttari eða eitthvað, og sleppur þessvegna fyrir félagsfræðibraut en er samt 200 áfangi.