Enginn óþarfi, en engu að síður ekki endilega pjúra sannleikur um þína persónu heldur þig einsog þú hefur birst mér í þeim tveimur þráðum sem ég hef skoðað í kvöld.
Annars geturðu sleppt hrokanum, því það er nokkuð fáránlegt að neita því að ME hafi oft verið hársbreidd á eftir MR-ingum að ýta á bjölluna og því ekki nema eðlilegt að efa að þú svo mikið sem dirfist að neita því. Ég held að ég hafi talið a.m.k. 4 skipti þarsem einhver sekúndubrot skildi á milli, en einhver sem er með betri tölu má þó endilega leiðrétta mig ef þess þarf.
Þó þú hafir ekki tekið eftir því, enda er þetta ekki hlutur sem maður tekur almennt eftir, þá er þetta engu að síður sannleikur og ráðlegg ég þér að horfa aftur á bjölluspurningarnar, en það má gera á ruv.is.