Ef innskotsaðferðin er það sama og innsetningaraðferð þá virkar hún svona:
Þú einangrar eina breytu úr annarri jöfnunni og setur inn í hina jöfnuna.
Dæmi:
3x + 2y =6
x + y/3 = 9
Einangrum x úr seinni jöfnunni, hér er seinni jafnan heppilegri.
x + y/3 = 9
x = 9- y/3
Svo setjum við þetta x í stað x í hinni jöfnunni:
3x + 2y = 6
3(9 - y/3) + 2y =6
27 - y + 2y = 6
y = -21
Svo seturu þetta gildi y í aðra hvora jöfnuna og færð út svarið.
3x + 2y = 6
3x + 2(-21) = 6
3x = 48
x = 16
„It is not worth an intelligent man's time to be in the majority. By definition, there are already enough people to do that.“