Googlaði smá
Hugtakið siðrof vísar til lögleysu, en með því er átt við að samfélagslegar aðstæður þar sem samheldni og hefðbundið skipulag, sérstaklega það sem tengist viðmiðum og gildum hefur veikst.
Durkheim, sem er upphafsmaður kenninga um siðrof taldi að siðrof væri venjulega fylgifiskur snöggra félagslegra breytinga, svo sem efnahagsþrenginga eða góðæra í samfélaginu.
Hefðbundin viðmið veikjast án þess að ný myndist og það leiðir til þess að einstaklingar vita ekki almennilega hvernig þeir eiga að umgangast og hegða sér í samskiptum hverjir við aðra.