Stúdentagarðarnir við hliðina á nýju verslunarmiðstöðinni á besta stað í Reykjanesbæ, rétt hjá öllu sem þú þarft, meirasegja lögreglustöðinni, hehe.
Þar eru 67 fm íbúðir á undir 50 þúsund á mánuði, eftir húsaleigubætur, sem eru 16.000 á mánuði. Reyndar fyrir utan þetta allt er hiti og rafmagn sem ætti alls ekki að fara yfir 10 þúsund á mánuði.
Bæta kannski við að þetta eru innan við 5 ára gamlar íbúðir og allar mjög vel farnar. Mæli eindregið með því. Ferð og sækir um íbúð þarna á fasteignasölunni sem er í sama húsi og Glitnir. Minnsta mál og ætti ekki að taka nema svona 2 vikur að fá íbúð ef þú ert dugleg að ýta á eftir þeim þar.