Það hugsa ekki allir stærðfræði eins, en sumum reynist mjög vel að átta sig á hugtakinu “breytiþáttur”.
Þar er t.d. 12% minnkun með breytiþáttinn 0,88 þ.e. (1 - 0,12) en 12% aukning með breytiþáttinn 1,12 þ.e. (1 + 0,12).
Þar sem minnkunin hérna er tvisvar í röð er heildar breytiþátturinn yfir tímabilið (0,88 * 0,88), eða 0,7744
Þannig að við vitum að x * 0,7744 = 220 , þá færum við bara breytiþáttinn yfir, en það gefur:
x = 220/0,7744
x ~= 284,1 (námundað)
Prófum þetta síðan, bara til að vera alveg viss.
284 * 0,88 * 0,88 = 219,9