hér eru þær spurningar sem ég er ekki viss um.
Gen á sama litningi uppfylla ekki lögmálið um:
a)arfgerðir kynfrumna
b)fullkominn aðskilnað erfða
c)líkindi erfða
d)óháða samröðun
ég valdi óháða samröðun
Ef einfruma dýr, sem er aðlagað saltvatni er sett í glas með hreinu vatni
a)helst stærð þess óbreytt
b)skreppur það fyrst saman en tútnar síðan út
c)skreppur það saman
d) tútnar það út
ég valdi tútnar það út
sp.43 Myndin sýnir vetrarbrautina sem sólkerfið okkar er hluti af.. vantar mynd en ég valdi K sem var frekar nálægt miðju án þess að hafa nokkurn grun um hvar við værum stödd í vetrarbrautinni
Vökvaknúin tæki byggjast á lögmálinu um að þrýstingur í straumefnum í afmörkuðu rými
a)er óstöðugur
b)verkar í eina átt
c)verkar í tvær áttir
d)verkar jafnt í allar áttir
ég valdi d- verkar jafnt í allar áttir
Hlutur flýtur í vökva og helmingur hans stendur upp úr vökvanum þegar
a)eðlismassi hlutarins er helmingi meiri en eðlismassi vökvans
b)hluturinn hefur rutt frá sér vökva sem er jafn heildarmassa hlutarins
c)massi hlutarins er minni en massi vökvans
d)þyngdarkrafturinn sem verkar á hlutinn er helmingi meiri en flotkrafturinn
ég valdi D- fannst það einhvernveginn rökrétt
Dæmið með byssukúlurnar
ég sagði að þær lentu báðar á sama tíma á jörðinni
myndritið seinni spurning , sagði að bræðslumarkið væri milli -15 og 10 gráður en eftir á held ég að það sé bara 10 gráður
pendúla tilraunin , hver er rannsóknarspurningin
sagði massi lengd og fjöldi
Jebb þetta var svona sirka það sem ég var ekki viss um - hvað fannst ykkur og var eitthvað sem þið voruð ekki viss um ?
Bætt við 2. maí 2008 - 16:33
held ég fái um það bil 8 - 9 í mesta lagi.