Veit enginn hvar ég get fundið ritgerð, útdrátt eða eitthvað almennilegt um Harðskafa? Ég er að fara að skrifa ritgerð um hana á morgun í íslensku og er búinn að eyða meira en 45 mínútum á google að leita.
Talaðu við þennan gaur; kannski vill hann lána þér sína.
Annars er þetta ekkert svakalega flókin saga og á þessum 45 mínútum sem þú eyddir á google og í að skrifa þennan þráð hefðirðu kannski getað lesið svona 20-30 síður.
Já en bókin er alveg 300bls og ef ég les 1bls á mínútu þá þarf ég alveg 5 klst. í þetta án pásu! Er reyndar búinn að lesa að 65 og get alveg klárað hana í nótt en þá verð ég svo þreyttur á morgun :D
Bara þægilegra að lesa útdrátt/ritgerð úr henni sem tekur kannski 10 mín í staðinn fyrir bók sem tekur nokkra tíma
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..