Mig langar, í framhaldi af þessari umræðu þar sem MH-ingar fá ekki nóg af því að skíta yfir það hversu ógeðslega illa MR-ingum gengur í þessu stríði, að vitna í viðtal við liðsstjóra MH-inga sem kom fram Kastljósinu á RÚV fyrr í kvöld.
Þegar hann var spurður að því hvað MH-ingar hefðu gert í stríðinu svaraði hann:
Ja við reystum níðsstöng fyrir framan MR og fórum með níð…
Uu.. nei. Þið reistuð ekki níðsstöng. Þið komuð upp í MR haldandi á blysum og níðsstöng þegar það var tími í gangi og fóruð með níð sem enginn heyrði (því þeir voru innandyra) og skilduð níðsstöngina svo ekki eftir. Þegar vandræðalegum upplestri níðsins var lokið urðuð þið öll rosa vandræðaleg og týndust burt kallandi “MH!MH!MH!”… og þess má geta að einungis þeir nemendur sem sitja við gluggan í stofunum í Gamla skóla á hliðinni sem vísar að Lækjargötunni sáu þetta. Kannski svona 20 manns og engir aðrir.
…og svo skiluðum við þessum fána sem að MR-ingar reistu fyrir framan skólann og migum á hann fyrir framan MR…
Í fyrsta lagi. Þetta er ekki hernaðaraðgerð. Þetta er illa framkvæmd vörn við okkar hernaðaraðgerð. VÖRN. Það er nefninlega Varnarstríð sem MH-ingar eru að berjast…
Og ég ætla ekki einusinni að byrja að tala um það að þið miguð á fánann… úff! Talandi um frumleika…
…og svo þessi skrif þarna MR-inga þarna uppi á MH gengu nú ekkert betur en svo, það, að við tókum þá sem hálfgerða gísla uppi á þaki og tókum stigann niður sem þeir notuðu til þess að komast upp á þak og sprautuðum á þá mjólk og mysu og vatni úr byssum.
Enn og aftur. VÖRN við OKKAR aðgerðum. MR-ingar skipuleggja aðgerð og MH-ingar bösta þá og reyna í flýti að gera eitthvað nógu slæmt við þá í aðstæðunum…
Þessar þrjár hetjur voru staddar uppi á MH í dag til þess að athuga hvort risastóra MR-ið sem við skrifuðum á þakið væri farið fyrir þyrluferð sem tók myndband af þakinu. ÞAÐ kallar maður AÐGERÐIR.
Jájá, þið getið sagt að okkar aðgerðir heppnist illa en prófið aðeins að líta í eigin barm og þið munuð sjá að þið eruð virkilega að skíta upp á bak í þessu stríði. Ekki einungis vegna aðgerðarleysis heldur líka vegna þess að þið hafið oftar en einu sinni ónáðað MORFÍs liðið okkar! Og það er stranglega bannað!
Ég hlakka virkilega til næstu daga. Ég hlakka til aðgerða MH-inga (því loksins núna hafa þeir fattað að þeir verða að fara að gera eitthvað sniðugt) og ég hlakka til þess að taka á móti þeim fagnandi og yfirbuga þá þar sem þeir reyna að svívirða nemendur Menntaskólans í Reykjavík.