Eins og ég sagði á /tilveran:
Klúður, og Páll Ásgeir má nú fara að hugsa sinn gang! Ótrúlegt hvað þetta er búið að gerast oft.
Ég er búin að heyra fullt af fólki segja “Já, dómarar gera nú mistök, sjáið t.d. fótboltadómara” en þetta er bara svo eeeekkki sambærilegt! Fótboltadómarar þurfa að sjá það sem gerist, og það gerist hratt en Páll Ásgeir býr til spurninguna og ætti að geta fundið trausta heimild til að hafa rétt svör!
Annars er mér nokk sama, því ég er MH-ingur. Og fyrir ykkur sem hugsið “Hva, er henni sama að hafa unnið óheiðarlega” þá já, það er ekki okkur að kenna heldur Páli. Liðið stóð sig vel og á vel skilið að komast áfram, þó svo að Kvennó eigi það líka skilið.